logo-for-printing

31. maí 2021

Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu líftryggingastofns

Bygging Seðlabanka Íslands
Hér með tilkynnist um yfirfærslu líftryggingastofns frá Yarden Uitvaartverzekeringen N.V. til Dela Natura- en levensverzekeringen N.V. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dagsetta 6. maí 2021 frá hollenska fjármálaeftirlitinu, De Nederlandsche Bank N.V.

Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (Fjármálaeftirlitsins) vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.

Ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar um að hjá félaginu séu fyrirliggjandi vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.

Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.
Til baka