logo-for-printing

22. júní 2021

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2021

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 05/2021 dagsett 20. maí sl. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, er því óbreyttur 1,75%.

Dráttarvextir verða því óbreyttir 8,75% fyrir tímabilið 1. - 31. júlí 2021.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2021:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 3,45% - (voru 3,30%)
• Vextir verðtryggðra útlána verða 1,90%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 2,30% - (voru 2,20%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2021


Til baka