logo-for-printing

02. september 2021

Halli á viðskiptajöfnuði 31,1 ma.kr. á öðrum ársfjórðungi 2021 – hrein staða við útlönd jákvæð um 36,6% af landsframleiðslu

Bygging Seðlabanka Íslands

Á öðrum ársfjórðungi 2021 var 31,1 ma.kr. halli á viðskiptajöfnuði við útlönd. Það er 8,3 ma.kr lakari niðurstaða en ársfjórðunginn á undan og 24,8 ma.kr. lakari en á sama fjórðungi árið 2020. Halli á vöruskiptajöfnuði var 55,7 ma.kr. en 25,2 ma.kr. afgangur var af þjónustujöfnuði.  Í lok ársfjórðungsins var hrein staða við útlönd jákvæð um 1.120 ma.kr. eða 36,6% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 79 ma.kr. eða 2,6% af VLF á fjórðungnum.

Sjá hér frétt nr. 21/2021:  Halli á viðskiptajöfnuði 31,1 ma.kr. á öðrum ársfjórðungi 2021 – hrein staða við útlönd jákvæð um 36,6% af landsframleiðslu


Til baka