logo-for-printing

17. september 2021

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 09/2021

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 08/2021 dagsett 18. ágúst sl. þar sem grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, hækkaði sem nam meginvaxtahækkuninni er tilkynnt var hinn 25. ágúst sl. úr 1,75% í 2,00%. Dráttarvextir hækka því að sama skapi og verða 9,00% fyrir tímabilið 1. - 31. október 2021.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. október 2021:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 3,65% - (voru 3,45%)
• Vextir verðtryggðra útlána verða 1,90%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 2,43% - (voru 2,30%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 09/2021

Til baka