logo-for-printing

21. október 2021

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2021

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 09/2021 dagsett 17. september sl. þar sem grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, hækkaði sem nam meginvaxtahækkuninni er tilkynnt var hinn 6. október sl. úr 2,00% í 2,25%. Dráttarvextir hækka því að sama skapi og verða 9,25% fyrir tímabilið 1. - 30. nóvember 2021.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða aftur á móti óbreyttir og verða áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. nóvember 2021:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 3,65%
• Vextir verðtryggðra útlána verða 1,90%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 2,43%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2021


Til baka