logo-for-printing

23. nóvember 2021

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2021

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 10/2021 dagsett 19. október sl. þar sem grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, hækkaði sem nam meginvaxtahækkuninni er tilkynnt var hinn 17. nóvember sl. úr 2,25% í 2,75%. Dráttarvextir hækka því að sama skapi og verða 9,75% fyrir tímabilið 1. - 31. desember 2021.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2021:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 3,80% - (voru 3,65%)
• Vextir verðtryggðra útlána verða 1,90% - (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum verða 2,53% - (voru 2,43%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2021


Til baka