logo-for-printing

30. nóvember 2021

Erindi Unnar Gunnarsdóttur varaseðlabankastjóra á ráðstefnu samráðsvettvangs samþættra fjármálaeftirlita

Unnur Gunnarsdóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits
Unnur Gunnarsdóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, hélt nýlega erindi á ráðstefnu samráðsvettvangs samþættra fjármálaeftirlita (Integrated Financial Supervisor‘s Conference) víðsvegar að úr heiminum. Þar lýsti hún því hver viðbrögð Íslendinga hefðu verið við Covid-faraldrinum, sagði frá þeim efnahagslegu áhrifum sem hann hafði og áhrifum hans á bankakerfið hér á landi, viðbrögðum bankakerfisins og þeim úrlausnarefnum sem nú er staðið frammi fyrir.

Í erindi sínu studdist Unnur við efni í meðfylgjandi glærum: Credit Relief and Provisioning.
Til baka