logo-for-printing

01. desember 2021

Viðskiptaafgangur 13,1 ma.kr. á þriðja fjórðungi 2021 - hrein staða við útlönd jákvæð um 41,1% af VLF

Bygging Seðlabanka Íslands

Á þriðja ársfjórðungi 2021 var 13,1 ma.kr. afgangur á viðskiptajöfnuði við útlönd. Það er 50 ma.kr. betri niðurstaða en ársfjórðunginn á undan og 12,5 ma.kr. betri en á sama fjórðungi árið 2020. Halli á vöruskiptajöfnuði var 47,4 ma.kr. en 60,3 ma.kr. afgangur var af þjónustujöfnuði.  

Í lok ársfjórðungsins var hrein staða við útlönd jákvæð um 1.294 ma.kr. eða 41,1% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 175 ma.kr. eða 5,6% af VLF á fjórðungnum. Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 4.964 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 3.670 ma.kr.

Sjá hér nánar í frétt Seðlabanka Íslands nr. 27/2021, 1. desember 2021: Viðskiptaafgangur var 13,1 ma.kr. á þriðja ársfjórðungi 2021 - hrein staða við útlönd jákvæð um 41,1% af landsframleiðslu.

 


Til baka