logo-for-printing

30. desember 2021

Endurskoðun á gjaldmiðlavogum

Krónur

Gjaldmiðlavogum sem liggja til grundvallar útreikningum á vísitölum meðalgengis hefur verið breytt í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2020. Endurskoðun fór síðast fram í upphafi árs 2021. Nýju vogirnar gilda frá og með 1. janúar 2022 til næstu endurskoðunar að ári. Sjá nánari upplýsingar hér: Endurskoðun á gjaldmiðlavogum

Gjaldmiðlavogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli eins vel og kostur er samsetningu vöru- og þjónustuviðskipta þjóðarinnar. Val á gjaldmiðlum í vogir byggist á þriggja ára meðalhlutdeild ríkja í vöru- og þjónustuviðskiptum landsins.

 


Til baka