logo-for-printing

02. mars 2022

Halli á viðskiptajöfnuði 44,2 ma.kr. á fjórða ársfjórðungi 2021 – hrein staða við útlönd jákvæð um 40,2% af VLF

Bygging Seðlabanka Íslands
Á fjórða ársfjórðungi 2021 var 44,2 ma.kr. halli á viðskiptajöfnuði við útlönd. Það er 61,2 ma.kr. lakari niðurstaða en ársfjórðunginn á undan og 67,6 ma.kr. lakari en á sama fjórðungi árið 2020.

Í lok ársfjórðungsins var hrein staða við útlönd jákvæð um 1.299 ma.kr. eða 40,2% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 45 ma.kr. eða 1,4% af VLF á fjórðungnum. Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 5.099 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 3.801 ma.kr.

Sjá hér nánar í frétt Seðlabanka Íslands nr. 7/2022 2. mars 2022: Halli á viðskiptajöfnuði 44,2 ma.kr. á fjórða ársfjórðungi 2021 – hrein staða við útlönd jákvæð um 40,2% af landsframleiðslu
Til baka