Seðlabanki Íslands hefur, að beiðni félagsins, afturkallað skráningu Skiptimyntar ehf. sem þjónustuveitandi viðskipta milli sýndarfjár, rafeyris og gjaldmiðla skv. 1. mgr. 35. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Bálkar miðlun ehf. hefur yfirtekið starfsemi Skiptimyntar ehf.