logo-for-printing

10. mars 2022

Ritið Fjármálaeftirlit 2022 er komið út

Ritið Fjármálaeftirlit 2022 hefur verið birt á vef Seðlabankans. Með árlegri útgáfu Fjármálaeftirlits leitast Seðlabankinn við að tryggja viðeigandi gagnsæi um störf og áherslur innan bankans á sviði fjármálaeftirlits. Í ritinu er skýrt frá því hvernig bankinn vinnur að þeim verkefnum sem fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands er falið í lögum auk þess sem upplýst er um helstu áherslur í yfirstandandi verkáætlun. Ritið er einnig gefið út á ensku undir heitinu Financial Supervision.

Sjá hér: Fjármálaeftirlit 2022 (uppfært 14.3.2022)
Til baka