logo-for-printing

23. mars 2022

Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu líftryggingastofns

Bygging Seðlabanka Íslands
Hér með tilkynnist um yfirfærslu líftryggingastofns frá útibúum Mandatum Henkivakuutusosakeyhtiö í Litháen, Lettlandi og Eistlandi til INVL Life UAB. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dagsetta 21. mars 2022 frá finnska fjármálaeftirlitinu, Financial Supervisory Authority.

Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.

Staðfestar upplýsingar liggja fyrir að hjá félaginu séu fyrirliggjandi vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.

Seðlabankinn veitir nánari upplýsingar ef óskað er.
Til baka