logo-for-printing

20. maí 2022

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 05/2022

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 04/2022 dagsett 26. apríl sl. þar sem að grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, hækkaði sem nam meginvaxtahækkuninni er tilkynnt var hinn 4. maí sl. úr 3,50% í 4,50%. Dráttarvextir hækka því að sama skapi og verða 11,50% fyrir tímabilið 1. - 30. júní 2022.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. júní 2022:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 4,65% (óbreyttir)
• Vextir verðtryggðra útlána verða 1,40% (voru 1,49%)
• Vextir af skaðabótakröfum verða 3,10% (óbreyttir)

 

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 05/2022

Til baka