logo-for-printing

01. júní 2022

Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns er varðar occupational disease liabilities (ábyrgðartryggingu vegna atvinnusjúkdóma)

Bygging Seðlabanka Íslands
Hér með tilkynnist um yfirfærslu vátryggingastofns er varðar occupational disease liabilities frá UK P&I Club N.V. í Hollandi til Accredited Insurance (Europe) Limited á Möltu. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dagsetta 28. apríl 2022 frá hollenska seðlabankanum, De Nederlandsche Bank.

Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.

Ekki liggja staðfestar upplýsingar hjá félaginu að fyrirliggjandi séu vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.

Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.
Til baka