logo-for-printing

09. júní 2022

Seðlabanki Íslands hefur uppfært lista yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa

Bygging Seðlabanka Íslands

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur uppfært lista á vef Seðlabankans yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa. Það er gert í samræmi við 10. gr. reglugerðar nr. 1420/2020, m.t.t. aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Samkvæmt reglugerðinni skal fjármálaeftirlitið halda lista yfir þau starfsheiti hér á landi sem teljast til háttsettra opinberra starfa, birta opinberlega á vefsvæði bankans og uppfæra eigi sjaldnar en tvisvar á ári.

Á listanum koma fram starfsheiti og nafn stofnunar, samtaka, fyrirtækis eða stjórnmálaflokks, eftir því sem við á. Listinn byggir á ákvæðum reglugerðarinnar og á upplýsingum frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu og stjórnmálaflokkum sem eiga kjörna fulltrúa á Alþingi, sbr. 11. gr. reglugerðarinnar.
Að þessu sinni er aðeins um að ræða breytingar á lista yfir fyrirtæki í eigu íslenska ríkisins, sbr. 8. gr. reglugerðar nr. 1420/2020.

Nánari upplýsingar er að finna hér: Listi yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa.
Til baka