logo-for-printing

22. júní 2022

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2022

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 05/2022 dagsett 19. maí sl. þar sem að meginvextir bankans hafa hækkað um 1,00 prósentu síðan þá og er nú grunnur dráttarvaxta kominn í 5,50%.

Dráttarvextir hækka því að sama skapi og verða 12,50% fyrir tímabilið 1. - 31. júlí 2022.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2022:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 5,40% - (voru 4,65%)
• Vextir verðtryggðra útlána verða áfram 1,40%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 3,60% - (voru 3,10%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2022

Til baka