logo-for-printing

26. júlí 2022

Brot Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja gegn 36. gr. e., 37. gr. og 39. gr. b. laga nr. 129/1997

Bygging Seðlabanka Íslands
Við yfirferð fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, í febrúar 2022, á gögnum Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja (LSV) um sundurliðun fjárfestinga vegna fjórða ársfjórðungs 2021 kom í ljós að eign séreignardeildar LSV í einum verðbréfasjóði hafði farið umfram lögbundin mörk skv. 3. mgr. 39. gr. b. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (skyldutryggingu lífeyrisréttinda). Eftir skoðun fjármálaeftirlits lauk málinu með því að athugasemdir voru gerðar við starfshætti LSV.

Sjá: Brot Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja gegn 36. gr. e., 37. gr. og 39. gr. b. laga nr. 129/1997
Til baka