logo-for-printing

12. ágúst 2022

Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta vátryggingastofns

Bygging Seðlabanka Íslands
Hér með tilkynnist um yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá China Taiping Insurance (UK) Co Ltd. til DARAG Deutschland AG í Þýskalandi. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dagsetta 8. ágúst 2022 frá breska eftirlitinu Prudential Regulation Authority.

Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.

Staðfestar upplýsingar liggja fyrir um að hjá félaginu séu fyrirliggjandi vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.

Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.
Til baka