logo-for-printing

17. ágúst 2022

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 08/2022

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta – (sem er lán gegn veði í 7 daga) - er óbreyttur 5,50% frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 08/2022 dags 18. júlí sl. Dráttarvextir haldast því að sama skapi óbreyttir og verða því áfram 12,50% fyrir tímabilið 1. - 30. september 2022.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. september 2022:

• Vextir óverðtryggðra útlána 6,25% - (óbreyttir)
• Vextir verðtryggðra útlána 1,89% - (voru 1,80%)
• Vextir af skaðabótakröfum 4,17% - (óbreyttir)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 08/2022


Til baka