logo-for-printing

20. október 2022

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2022

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 09/2022 dagsett 19. september sl. þar sem að meginvextir bankans hafa hækkað um 0,25 prósentu síðan þá og er nú grunnur dráttarvaxta kominn í 6,50%.
Dráttarvextir hækka því að sama skapi og verða 13,50% fyrir tímabilið 1. - 30. nóvember 2022.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. nóvember 2022:

    • Vextir óverðtryggðra útlána verða 6,25% - (óbreyttir)
    • Vextir verðtryggðra útlána verða 2,10% - (óbreyttir)
    • Vextir af skaðabótakröfum verða 4,17% - (óbreyttir)

 

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2022

 

 

Til baka