![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
The Banker velur Ásgeir Jónsson seðlabankamann ársins 2023
![Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri](/library/Ljosmyndir_ISL/Starfsfolk_ISL/sedlabankinnn_asgeir_jonsson-1%20-%20Copy%20(1).jpg?proc=AdalmyndFrett)
Fjármálatímaritið The Banker hefur valið Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra, seðlabankamann ársins 2023. Verðlaunin eru viðurkenning til embættismanns sem að mati blaðsins hefur tekist best að örva hagvöxt og stuðla að jafnvægi í hagkerfi sínu.
Í grein The Banker, þar sem valið er rökstutt, er bent á að Ásgeir, sem formaður peningastefnunefndar, hafi haft forystu um að Seðlabanki Íslands var fyrstur seðlabanka á Vesturlöndum til að hækka vexti í maí 2021 í kjölfar Covid farsóttarinnar til að stemma stigu við verðbólgunni. Þar er einnig greint frá hvernig bankinn hefur beitt þjóðhagsvarúðartækjum til að auka viðnámsþrótt í litlu opnu hagkerfi eins og Íslandi.
Haft er eftir Ásgeiri í lok greinarinnar að þessi útnefning sé afar jákvæð og mikilvæg viðurkenning á því starfi sem unnið hafi verið innan bankans í kjölfar farsóttarinnar.
Sjá nánar: Central Banker of the Year 2023.