Könnun á væntingum markaðsaðila
Seðlabanki Íslands kannaði væntingar markaðsaðila dagana 23. til 25. janúar sl. Leitað var til 38 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana, fyrirtækja með starfsleyfi til eignastýringar og tryggingafélaga. Svör fengust frá 32 aðilum og var svarhlutfallið því 84%.
Helstu niðurstöður
Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að markaðsaðilar vænti þess að verðbólga minnki þegar líður á árið og verði 5,4% að ári liðnu og 4% eftir tvö ár. Væntingar til eins árs hækkuðu frá síðustu könnun en væntingar til tveggja ára voru óbreyttar. Verðbólguvæntingar til fimm og tíu ára lækkuðu hins vegar lítillega frá síðustu könnun og voru 3,5% til fimm ára og 3,3% til tíu ára. Könnunin gefur til kynna að markaðsaðilar vænti þess að gengi krónunnar hækki lítillega á næstu misserum og að gengi evru gagnvart krónu verði 150 krónur eftir eitt ár.
Miðað við miðgildi svara í könnuninni búast markaðsaðilar við því að vextir bankans hækki í 6,25% á yfirstandandi fjórðungi en taki að lækka á síðasta fjórðungi ársins. Þá búast þeir við því að meginvextir verði 6% að ári liðnu og 4,75% eftir tvö ár. Þetta eru nokkru hærri vextir en markaðsaðilar bjuggust við í síðustu könnun bankans í nóvember sl.
Flestir svarendur töldu taumhald peningastefnunnar hæfilegt eða 56% en hlutfallið var 67% í síðustu könnun. Á móti hækkaði hlutfall þeirra sem telja taumhaldið of laust í 28% úr 18% í síðustu könnun. Þá töldu 16% að taumhaldið væri of þétt.
Á heildina litið jókst dreifing svara markaðsaðila um væntingar til verðbólgu frá nóvemberkönnuninni en hún minnkaði þó þegar horft er til tveggja ára. Hins vegar minnkaði dreifing svara um væntingar til vaxta lítillega á heildina litið frá síðustu könnun.
Markaðsaðilar voru einnig spurðir að því hvaða þættir þeir telja að ráði mestu um þróun verðbólgu á næstu tólf mánuðum. Flestir nefndu gengi krónunnar eða um 70% þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar. Þá nefndu 59% svarenda kjarasamninga, 56% þróun íbúðaverðs og 22% alþjóðlega verðbólgu.
Sjá hér gögn um væntingar markaðsaðila:
Könnun á væntingum markaðsaðila fyrsta ársfjórðung 2023
Sjá sérstaka upplýsingasíðu um væntingar markaðsaðila hér á vef Seðlabankans