logo-for-printing

20. febrúar 2023

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 02/2023

Bygging Seðlabanka Íslands og Esjan á bakvið

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 01/2023 dagsettri 18. janúar sl. þar sem að meginvextir bankans hafa hækkað um 0,50 prósentur síðan þá. Dráttarvextir hækka því að sama skapi og verða 14,25% fyrir tímabilið 1. - 31. mars 2023.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir breytast ekki og verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. mars 2023:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 7,50%
• Vextir verðtryggðra útlána verða 2,60%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 5,00%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 02/2023


Til baka