logo-for-printing

21. apríl 2023

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2023

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 03/2023 dagsettri 17. mars sl. þar sem að meginvextir bankans hafa hækkað um 1,00% síðan þá. Dráttarvextir hækka því að sama skapi og verða áfram 15,25% fyrir tímabilið 1. - 31. maí 2023.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir hækka einnig og verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. maí 2023:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 8,75%
• Vextir verðtryggðra útlána verða 2,65%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 5,83%

 

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2023


Til baka