logo-for-printing

26. apríl 2023

Gísli Óttarsson ráðinn í starf framkvæmdastjóra varúðareftirlits Seðlabanka Íslands

Gísli Óttarsson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra varúðareftirlits Seðlabanka Íslands, en staðan var auglýst laus til umsóknar í febrúar síðastliðnum. Gísli hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra bankasviðs Seðlabanka Íslands frá því í september 2022 og frá janúar 2023 var hann settur framkvæmdastjóri varúðareftirlits í kjölfar skipulagsbreytinga á fjármálaeftirlitssviðum bankans.

Gísli hóf störf í Seðlabankanum í árslok 2020 sem áhættustjóri bankans. Hann var framkvæmdastjóri áhættustýringar Arion banka frá 2009-2020, en var áður forstöðumaður í áhættustýringu Kaupþings banka frá 2006-2008. Frá 1994 til 2006 var hann stjórnandi í hugbúnaðarþróun Mechanical Dynamics Inc í Bandaríkjunum. Gísli er með BS-gráðu í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands, MS-gráðu í hagnýtri aflfræði og doktorsgráðu í vélaverkfræði frá University of Michigan, auk þess að vera með próf í verðbréfaviðskiptum.


Til baka