logo-for-printing

08. maí 2023

Skýrsla fjármálaeftirlitsnefndar fyrir árið 2022 kynnt fyrir efnahags- og viðskiptanefnd

Skýrsla fjármálaeftirlitsnefndar fyrir árið 2022 verður kynnt og til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis á morgun, þriðjudaginn 9. maí 2023 klukkan 9:15. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Unnur Gunnarsdóttir, fyrrverandi varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits og Björk Sigurgísladóttir, núverandi varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, verða gestir fundarins.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás þingsins.

Nánari upplýsingar eru aðgengilegar á vef Alþingis og vef Seðlabankans.

Upplýsingar á vef Alþingis um opinn kynningarfund um skýrslu fjármálaeftirlitsnefndar fyrir árið 2022

Skýrsla fjármálaeftirlitsnefndar fyrir árið 2022 verður birt að fundi loknum.
Til baka