logo-for-printing

19. maí 2023

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 05/2023

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 04/2023 dagsettri 21. apríl sl. þar sem að meginvextir bankans hafa ekkert breyst síðan þá. Dráttarvextir haldast því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 15,25% fyrir tímabilið 1. - 30. júní 2023.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. júní 2023:

• Vextir óverðtryggðra útlána 8,75%
• Vextir verðtryggðra útlána 2,65%
• Vextir af skaðabótakröfum 5,83%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 05/2023


Til baka