logo-for-printing

23. maí 2023

REC SJÓÐIR ehf. skráð sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða

Bygging Seðlabanka Íslands
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands skráði REC SJÓÐI ehf. sem rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 11. maí 2023, sbr. 7. gr. laga nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í skráningunni felst heimild rekstraraðila til að reka sérhæfða sjóði að því gefnu að verðmæti heildareigna í rekstri aðila fari ekki umfram þau mörk sem kveðið er á um í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2020.
Til baka