logo-for-printing

12. júní 2023

SIV eignastýring hf. fær starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða

Bygging Seðlabanka Íslands
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands veitti SIV eignastýringu hf. starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða samkvæmt lögum nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, þann 9. júní 2023. Í leyfinu felst heimild félagsins til að reka sérhæfða sjóði, sbr. 1. og 2. mgr. 9. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Félaginu er einnig heimilt að sinna eignastýringu og móttöku og miðlun fyrirmæla varðandi fjármálagerninga skv. 1. og 4. tölul. 3. mgr. 9. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Til baka