logo-for-printing

21. júní 2023

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2023

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er breyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 05/2023 dagsettri 19. maí sl. þar sem að meginvextir bankans hafa hækkað síðan þá. Dráttarvextir breytast því að sama skapi og verða 16,50% fyrir tímabilið 1. - 31. júlí 2023.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir breytast og verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2023:

• Vextir óverðtryggðra útlána 9,25% (voru 8,75%)
• Vextir verðtryggðra útlána 2,65% (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 6,17% (voru 5,83%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2023


Til baka