logo-for-printing

20. september 2023

Vefútsending vegna yfirlýsingar fjármálastöðugleikanefndar og útgáfu Fjármálastöðugleika 20 september 2023

Skjaldarmerki Íslands

Yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands var birt kl. 8:30 miðvikudaginn 20. september. Ritið Fjármálastöðugleiki var birt á vef bankans klukkan 8:35 og vefútsending frá kynningu vegna yfirlýsingar nefndarinnar og útgáfu Fjármálastöðugleika fór fram kl. 9:30. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður fjármálastöðugleikanefndar, Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika og Haukur C. Benediktsson, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika, gerðu grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar og kynna efni ritsins Fjármálastöðugleika.

Nánari upplýsingar um fjármálastöðugleika má finna á sérstakri síðu, sjá hér: Fjármálastöðugleiki.

Hér má finna tengla á útgefin rit, m.a. Fjármálastöðugleika.

Upptaka af kynningarfundinum er aðgengileg hér fyrir neðan:

Til baka