logo-for-printing

16. október 2023

Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns

Hér með tilkynnist um yfirfærslu vátryggingastofns frá Codan Forsikring A/S til Alm. Brand Forsikring A/A í Danmörku. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dagsetta 10. október 2023 frá danska fjármálaeftirlitinu, Finanstilsynet.

Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands veitir nánari upplýsingar ef óskað er.


Til baka