logo-for-printing

12. janúar 2024

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis um störf nefndarinnar á seinni hluta ársins 2023 er nú aðgengileg hér á vef bankans. Viðamikið ítarefni fylgir skýrslunni.

Lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Skýrslan hefur verið til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Frá því að síðasta skýrsla var send Alþingi hefur nefndin haldið þrjá reglulega fundi og var síðasta yfirlýsing nefndarinnar birt 22. nóvember 2023. Eftirfarandi skýrsla fjallar um störf nefndarinnar frá júlí til desember 2023.

Skýrsluna má nálgast hér: Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis fyrir seinni hluta ársins 2023.

Fyrri skýrslur um störf peningastefnunefndar má finna hér: Skýrslur peningastefnunefndar til Alþingis

Til baka