logo-for-printing

20. febrúar 2024

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 02/2024

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 01/2024 dagsettri 19. janúar sl. þar sem að engar breytingar hafa átt sér stað á meginvöxtum bankans síðan þá.

Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 17,00% fyrir tímabilið 1. - 31. mars 2024.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. mars 2024:

  • Vextir óverðtryggðra útlána 9,45% - (voru 9,60%)
  • Vextir verðtryggðra útlána 3,50% - (óbreyttir)
  • Vextir af skaðabótakröfum 6,30% - (voru 6,40%)
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 02/2024
Til baka