04.03.2004
Fyrirlestur um fjármálastöðugleika
Már Guðmundsson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, hélt í dag gestafyrirlestur við Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands um fjármálastöðugleika. Heiti fyrirlestrarins var: Þjóðarbúskapurinn, fjármálastöðugleiki og peningastefna. Hér á síðunni er hægt að skoða texta í PowerPoint-skjali sem Már studdist við í fyrirlestrinum.