logo-for-printing

07.09.2020

Kynningar varaseðlabankastjóra á stöðu efnahagsmála

Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, flutti nýverið erindi um stöðu efnahagsmála hjá Samkeppniseftirlitinu og Félagi atvinnurekenda. Fyrra erindið var flutt miðvikudaginn 3. þessa mánaðar á fundi stjórnar Samkeppniseftirlitsins og í dag hélt Rannveig erindi á fundi Félags atvinnurekenda. Kynning Rannveigar bar yfirskriftina Efnahagshorfur á tímum heimsfaraldurs og fjallaði um efnahagshorfur og aðgerðir Seðlabanka Íslands í ljósi COVID-19 farsóttarinnar.

Hér má finna skjöl með kynningum sem Rannveig studdist við á fundunum:

Kynningarglærur á fundi Samkeppniseftirlitsins

Kynningarglærur á fundi Félags atvinnurekenda
Til baka