logo-for-printing

09.02.2021

Aðalhagfræðingur Seðlabankans kynnir efni Peningamála

Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu í Seðlabanka Íslands, hefur á síðustu dögum kynnt efni nýútgefinna Peningamála á fundum í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Arion banka. Í kynningunum greindi hann meðal annars frá horfum í efnahagsmálum og nýrri verðbólguspá.

Kynningarefni sem Þórarinn studdist við má finna hér: Peningamál 2021/1 - Kynning Þórarins G. Péturssonar, aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands.

Ritið Peningamál má nálgast hér: Peningamál 2021/1.


Til baka