logo-for-printing

Sjálfbærniskýrsla Seðlabankans fyrir 2021

Seðlabanki Íslands hefur nú í fyrsta sinn gefið út sjálfbærniskýrslu fyrir starfsemi sína og nær hún til ársins 2021. Stefnt er að árlegri útgáfu í takt við markmið bankans um að ná frekari árangri á sviði sjálfbærni á næstu árum.

Sjálfbærniskýrslan inniheldur sjálfbærniupplýsingar úr rekstri bankans ásamt því að greina frá hvernig bankinn innleiðir loftslagsmál og sjálfbærni í kjarnastarfsemi sína. Þá er reifað hvernig bankinn miðlar upplýsingum og styður við innleiðingu á sjálfbærni fyrir þá starfsemi sem hann hefur eftirlit með.

Skýrsluna má nálgast hér: Sjálfbærniskýrsla 2021

Til baka