Gjaldeyrisjöfnuður
Markmið reglna um gjaldeyrisjöfnuð er að takmarka gengisáhættu og koma í veg fyrir að gjaldeyrisjöfnuður lánastofnana fari út fyrir tiltekin mörk.
Reglur nr. 784/2018 eru gefnar út á grundvelli 24. gr. laga nr. 92/2019, um Seðlabanka Íslands, sem kveður á um heimild bankans til að setja lánastofnunum reglur um gjaldeyrisjöfnuð.
Reglurnar taka til móðurfélags og samstæðu lánastofnana, þ.e. viðskiptabanka, sparisjóða og annarra stofnana og félaga sem hlotið hafa starfsleyfi samkvæmt 4. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 með síðari breytingum, nefnd einu nafni fjármálafyrirtæki í reglum um gjaldeyrisjöfnuð.
Lánastofnanir skila skýrslum um gjaldeyrisjöfnuð mánaðarlega og viðskiptavakar á millibankamarkaði með gjaldeyri skila að auki viðaminni skýrslu um gjaldeyrisjöfnuð daglega. Skýrslurnar innihalda ítarlegar upplýsingar um nústöðu og framvirka stöðu erlendra eigna og skulda.
Takmarkanir á gjaldeyrisjöfnuð | Kerfislega mikilvægur eftirlitsskyldur aðili | Lánastofnun sem ekki er kerfislega mikilvægur eftirlitsskyldur aðili |
---|---|---|
Opin gjaldeyrisstaða sem hlutfall af eiginfjárgrunni | 10% | 15% |
Heildarjöfnuður sem hlutfall af eiginfjárgrunni | 10% | 15% |
Þó aldrei hærri fjárhæð en | 25 ma.kr. | 25 ma.kr. |