Laust fé og stöðug fjármögnun
Seðlabanka Íslands er heimilt að setja reglur um laust fé og stöðuga fjármögnun fjármálafyrirtækja, sbr. 3. mgr. 117. gr. b laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Samkvæmt 2. mgr. ákvæðisins er heimilt að kveða á um lágmark og meðaltal lauss fjár og lágmark stöðugrar fjármögnunar í íslenskum krónum og erlendum gjaldmiðlum og í þeim má ákveða að mismunandi ákvæði gildi um einstaka flokka fjármálafyrirtækja.
Sýna allt
Laust fé
Reglur nr. 1520/2022, um lausafjárhlutfall lánastofnana, tóku gildi hinn 1. janúar 2023 og komu í stað eldri reglna nr. 266/2017. Reglurnar eru settar með heimild í 82. tölul. 2. mgr. og fyrrgreindri 3. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki. Með reglunum er innleitt gildandi evrópskt regluverk á þessu sviði, nánar tiltekið framseld reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2015/61 og breytingar sem hafa verið gerðar á henni. Reglugerðin er innleidd í heild sinni með tilvísun, sbr. 4. gr. reglnanna.
Markmið með kröfum um laust fé er að draga úr lausafjáráhættu lánastofnana með því að stuðla að því að þær eigi ávallt laust fé til að mæta skuldbindingum við álagsaðstæður á tilteknu tímabili. Með reglugerð (ESB) 2015/61 eru þannig gerðar kröfur um að lánastofnanir hafi tiltækar auðseljanlegar hágæða lausafjáreignir, eins og þær eru nánar afmarkaðar í reglugerðinni, ekki aðeins til að geta staðið skil á skuldbindingum á gjalddaga heldur einnig mögulegu útflæði sem verður til dæmis vegna úttekta innlána, minni möguleika á fjármögnun fyrir lánastofnanir eða aukinna krafna um tryggingar eða annað sem krefst fjárútláta lánastofnunar við álagsaðstæður næstu 30 daga.Lausafjárhlutfallið er reiknað í samræmi við eftirfarandi jöfnu:
Lausafjárhlutfall (%) = Lausafjárforði / Nettó útflæði lausafjár næstu 30 daga
Samkvæmt reglugerð (ESB) 2015/61 ber lánastofnunum skylda til að:
- Skila skýrslum og viðhalda að lágmarki 100% lausafjárhlutfalli á hverjum tíma í öllum gjaldmiðlum samtals
- Skila skýrslum og hafa eftirlit með hlutfalli í einstökum gjaldmiðlum þar sem heildarskuldbindingar eru jafnar eða umfram 5% af heildarskuldum lánastofnunar (e. significant currency)
- Tryggja að gjaldmiðlasamsetning lausafjáreigna þeirra sé í samræmi við gjaldmiðlasamsetningu nettó útflæðis þeirra að teknu tilliti til vægis skv. reglunum
Þá er að finna heimild fyrir Seðlabankann til að krefjast þess að lánastofnanir lágmarki gjaldmiðlamisræmi með því að takmarka hlutfall nettó útflæðis lausafjár í tilteknum gjaldmiðli sem mæta má á álagstíma með lausafjáreignum í öðrum gjaldmiðli. Slíkar takmarkanir gilda aðeins fyrir reikningsskilagjaldmiðil eða gjaldmiðil yfir framangreindum viðmiðunarmörkum.Í reglum um lausafjárhlutfall lánastofnana er gerð krafa um að lánastofnanir uppfylli að lágmarki:
- 50% lausafjárhlutfall í íslenskum krónum, sbr. 1. mgr. 3. gr. reglnanna
- 80% lausafjárhlutfall í evru, ef skuldbindingar í evrum nema 10% eða meira af heildarskuldbindingum viðkomandi lánastofnunar, sbr. 2. mgr. 3. gr. reglnanna
Reglurnar taka til móðurfélags og samstæðu þar sem lánastofnun er móðurfélag í henni. Lánastofnunum er skylt að senda Seðlabankanum a.m.k. mánaðarlega skýrslu um upplýsingar sem liggja til grundvallar útreikningi á lausafjárhlutfallinu á því formi sem kveðið er á um í reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2021/451, sbr. reglur nr. 1163/2022, um gagnaskil fjármálafyrirtækja. Skýrslum um laust fé skal skilað til Seðlabankans fyrir fimmtánda dag hvers mánaðar vegna móðurfélags og samstæðu. Lausafjárkröfur taka til 30 daga lausafjárhlutfalls og skulu uppfylltar á hverjum tíma. Komi til þess að lánastofnun sé, eða fyrirsjáanlegt sé að hún verði, innan næstu sex mánaða, undir lágmarki reglnanna skal hún án tafar tilkynna Seðlabankanum um það skriflega og tilgreina ástæður á fullnægjandi hátt. Viðkomandi lánastofnun skal enn fremur leggja fram tímasetta áætlun um hvernig hún hyggst ná lágmarki lausafjárhlutfalls samkvæmt reglunum.Auk lausafjárskýrslna skal skila innstæðuyfirliti og viðbótar lausafjárskýrslum (e. AMM) til upplýsingar. Einnig skal veita allar þær upplýsingar sem Seðlabankinn telur nauðsynlegar til að geta betur metið lausafjárstöðu lánastofnunar eða framkvæmt álagspróf. Skýrslunum er skilað á XBRL-formi í gegnum gagnaskilakerfi Seðlabankans.
Lausafjárhlutfall Lágmark Lausafjárhlutfall fyrir alla gjaldmiðla samtals 100% Lausafjárhlutfall fyrir evrur fyrir lánastofnanir þar sem skuldbindingar í evrum nema 10% eða meira af heildarskuldbindingum viðkomandi lánastofnunar 80% Lausafjárhlutfall fyrir íslenskar krónur 50% Stöðug fjármögnun
Kröfur um hlutfall stöðugrar fjármögnunar (e. net stable funding ratio, NSFR) gilda hér á landi í samræmi við ákvæði reglugerðar (ESB) 575/2013 (CRR) eins og henni var breytt með reglugerð (ESB) 2019/876 (CRR II), en síðarnefnda reglugerðin inniheldur ákvæði er lúta að kröfum um stöðuga fjármögnun. Með lögum nr. 38/2022, um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki og fleiri lögum, sem tóku gildi 28. júní 2022, var CRR lögfest í heild hér á landi ásamt öðrum reglugerðum sem breyttu CRR, m.a. CRR II, sbr. 1. gr. c laga um fjármálafyrirtæki. Áður hafa verið í gildi reglur Seðlabanka Íslands um hlutfall stöðugrar fjármögnunar lánastofnana, nú síðast reglur nr. 750/2021, en þær byggðu á evrópska regluverkinu og hafa verið felldar brott í kjölfar lögfestingar CRR reglugerðarinnar, sbr. CRR II, hér á landi.
Kröfur um hlutfall stöðugrar fjármögnunar miða að því að takmarka tímamisræmi á milli eigna og skulda lánastofnana og að hve miklu leyti lánastofnanir reiða sig á óstöðuga skammtímafjármögnun til að fjármagna langtímaeignir að þessu leyti.
Hlutfall stöðugrar fjármögnunar er reiknað sem hlutfall tiltækrar stöðugrar fjármögnunar (e. available stable funding) af nauðsynlegri stöðugri fjármögnun (e. required stable funding):Hlutfall stöðugrar fjármögnunar (%) = Tiltæk fjármögnun / Nauðsynleg stöðug fjármögnun
Nauðsynleg stöðug fjármögnun eru eignir innan og utan efnahagsreiknings margfaldaðar með viðeigandi vægi og reiknast sem hærri fjárhæð eftir því sem stærra hlutfall eignasafnsins er til langs tíma eða talið illseljanlegt. Þannig hefur útlánasafnið til að mynda mismunandi vægi eftir tímalengd og tegund útlána. Því hærri sem nauðsynleg fjármögnun verður þeim mun meiri tiltæka stöðuga fjármögnun þarf sem telst t.d. vera eigið fé, skuldir með lengri eftirstöðvatíma en ár og önnur langtímafjármögnun.
Samkvæmt ákvæðum CRR reglugerðarinnar, sbr. CRR II, er lánastofnunum skylt að:- Skila skýrslum og viðhalda að lágmarki 100% hlutfalli stöðugrar fjármögnunar á hverjum tíma í öllum gjaldmiðlum samtals
- Skila skýrslum og hafa eftirlit með hlutfalli í einstökum gjaldmiðlum þar sem heildarskuldbindingar eru jafnar eða umfram 5% af heildarskuldum lánastofnunar (e. significant currency)
- Tryggja að gjaldmiðlasamsetning fjármögnunar sé í samræmi við gjaldmiðlasamsetningu eigna þeirra að teknu tilliti til vægis skv. reglunum
Þá er að finna heimild fyrir Seðlabankann til að gera sérstakar kröfur í þeim tilgangi að lágmarki gjaldmiðlamisræmi með því að takmarka hlutfall nauðsynlegrar stöðugrar fjármögnunar í tilteknum gjaldmiðli sem mæta má með tiltækri stöðugri fjármögnun í öðrum gjaldmiðli. Slíkar takmarkanir gilda aðeins fyrir reikningsskilagjaldmiðil eða gjaldmiðil yfir framangreindum viðmiðunarmörkum. Ekki hafa verið innleiddar sértækar kröfur um stöðuga fjármögnun hér á landi.
Kröfur um stöðuga fjármögnun taka til móðurfélags og samstæðu þar sem lánastofnun er móðurfélag í henni. Lánastofnanir skulu skila Seðlabankanum a.m.k. ársfjórðungslega skýrslum um stöðuga fjármögnun á því formi sem kveðið er á um í reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2021/451, sbr. reglur nr. 1163/2022, um gagnaskil fjármálafyrirtækja. Komi til þess að lánastofnun sé, eða fyrirsjáanlegt sé að hún verði, undir lágmarki hlutfalls stöðugrar fjármögnunar skal hún án tafar tilkynna Seðlabankanum um það skriflega og tilgreina ástæður á fullnægjandi hátt. Viðkomandi lánastofnun skal enn fremur leggja fram tímasetta áætlun um hvernig hún hyggst ná lágmarki hlutfalls stöðugrar fjármögnunar.
Auk þess skal veita allar þær upplýsingar sem Seðlabankinn telur nauðsynlegar til að geta betur metið fjármögnunaráhættu lánastofnunar. Skýrslunum er skilað á XBRL-formi í gegnum gagnaskilakerfi Seðlabankans.
Stöðug fjármögnun Lágmark Hlutfall stöðugrar fjármögnunar í öllum gjaldmiðlum samtals 100%