Innköllun seðla
Lög um gjaldmiðil Íslands, nr. 22/1968 og Reglugerð nr. 1125/2005 um innköllun seðla má finna hér: Lög og reglur.
Þrír seðlar, þ.e. 10, 50 og 100 króna seðlar, hafa verið innkallaðir. Þeir voru fyrst settir í umferð árið 1981. Hægt var að innleysa seðlana í bönkum og sparisjóðum til 1. júní 2007, en eftir það innleysir Seðlabanki Íslands þá í að minnsta kosti 12 mánuði.
Ítarefni um innköllun seðla
- Innköllun seðla - frétt nr. 20/2006
- Auglýsing um innköllun seðla - 31. maí 2006
- Breyttur 500 kr. seðill - frétt nr. 30/2005
- Breyttir 1000 kr. og 500 kr. seðlar - frétt nr. 31/2004
- Breyttur 5000 kr. seðill - frétt nr. 29/2003