logo-for-printing

Bankakerfi

25. nóvember

Október 2024

Eignir innlánsstofnana námu 5.803,1 ma.kr. í lok október og hækkuðu um 31,8 ma.kr. í mánuðinum. Innlendar eignir innlánsstofnana námu 5.252,5 ma.kr. og hækkuðu um 11,1 ma.kr. Erlendar eignir námu 550,5 ma.kr. og hækkuðu um 20,7 ma.kr. Innlendar skuldir voru 4.011,9 ma.kr. og hækkuðu um 10,4 ma.kr. í október. Erlendar skuldir námu 960,8 ma.kr. og hækkuðu um 11,1 ma.kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 830,4 ma.kr. í lok október og hækkaði um 10,2 ma.kr. í mánuðinum.

Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum námu 40,8 ma.kr. í lok október, þar af voru verðtryggð lán 36,4 ma.kr., óverðtryggð lán - 2,3 ma.kr., lán í erlendum gjaldmiðlum 5,2 ma.kr. og eignarleiga 1,6 ma.kr.

Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 15,1 ma.kr. í október, þar af námu lán með veði í íbúð 12,7 ma.kr. sem var 338 m.kr. lækkun frá september.


Næsta birting: 23. desember 2024


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is