logo-for-printing

Bankakerfi

24. janúar

Desember 2024

Eignir innlánsstofnana námu 5.759,1 ma.kr. í lok desember og lækkuðu um 42,6 ma.kr. í mánuðinum. Innlendar eignir innlánsstofnana námu 5.267 ma.kr. og lækkuðu um 17,5 ma.kr. Erlendar eignir námu 492,1 ma.kr. og lækkuðu um 25,1 ma.kr. Innlendar skuldir voru 3.982,5 ma.kr. og lækkuðu um 29,1 ma.kr. í desember. Erlendar skuldir námu 931,1 ma.kr. og lækkuðu um 22,1 ma.kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 845,5 ma.kr. í lok desember og hækkaði um 8,6 ma.kr. í mánuðinum.

Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum námu 76 ma.kr. í lok desember, þar af voru verðtryggð lán 16,1 ma.kr., óverðtryggð lán 24,8 ma.kr., lán í erlendum gjaldmiðlum 33,1 ma.kr. og eignarleiga 1,9 ma.kr.

Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 12 ma.kr. í desember, þar af námu lán með veði í íbúð 4,4 ma.kr. sem var 5,3 ma.kr. lækkun frá nóvember.


Næsta birting: 25. febrúar 2025


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is