logo-for-printing

Erlend staða þjóðarbúsins

06. mars

4. ársfjórðungur 2024

Í lok ársfjórðungsins var hrein staða við útlönd jákvæð um 1.963 ma.kr. eða 42,5% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 120 ma.kr. eða 2,6% af VLF á fjórðungnum. Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 6.549 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 4.586 ma.kr. Á fjórðungnum batnaði staðan um 79 ma.kr. vegna fjármagnsviðskipta. Erlendar eignir jukust um 140 ma.kr. og skuldir um 61 ma.kr. Gengis- og verðbreytingar juku virði eigna á ársfjórðungnum um 21 ma.kr. en minnkuðu virði skulda um 30 ma.kr. og leiddu því til 51 ma.kr. betri hreinnar erlendrar stöðu. Gengi krónunnar hækkaði um tæp 3,5% í fjórðungnum miðað við gengisskráningarvog. Verð á erlendum verðbréfamörkuðum lækkaði um 0,4% milli fjórðunga og verð á bréfum á innlendum hlutabréfamarkaði hækkaði um 16,3%.


Næsta birting: 05. júní 2025


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is