logo-for-printing

Lífeyrissjóðir

06. mars

Janúar 2025

Eignir lífeyrissjóða námu 8.464,7 ma.kr. í janúar og hækkuðu um 222,5 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 7.518,2 ma.kr. og séreignadeilda 946,5 ma.kr.

Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 4.917,6 ma.kr. og hækkuðu um 6,2 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.674,8 ma.kr. og hækkuðu um 29,6 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.088,9 ma.kr. og lækkuðu um 9,5 ma.kr. Innlend útlán námu 689,4 ma.kr. og hækkuðu um 7,3 ma.kr.

Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 3.547,1 ma.kr. í lok janúar og hækkuðu um 216,2 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 3.475,8 ma.kr. og hækkuðu um 216 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum lækkuðu um 0,7 ma.kr. og námu 6,3 ma.kr.

Hrein eign lífeyrissjóða nam 8.450,3 ma.kr. í lok janúar.


Næsta birting: 04. apríl 2025


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is