Greiðslukerfi
Millibankagreiðslukerfi Seðlabanka Íslands - MBK kerfið
Millibankagreiðslukerfi Seðlabanka Íslands (MBK) er sjálfstætt kerfi í eigu Seðlabankans. Um kerfið gilda reglur nr. 1030 frá 22. október 2020 um millibankagreiðslukerfi Seðlabanka Íslands. Kerfið skiptist í tvo hluta stórgreiðslukerfi (RTGS) og smágreiðslukerfi (EXP). Stórgreiðslur eru greiðslufyrirmæli að fjárhæð 10 m.kr. eða hærri milli viðskiptavina tveggja fjármálafyrirtækja. Í stórgreiðslukerfinu fer fram rauntíma brúttóuppgjör með íslenskar krónur. Í því eru m.a. gerð upp viðskipti Seðlabankans við innlánsstofnanir og viðskipti á millibankamarkaði með gjaldeyri. Þá eru einnig framkvæmd uppgjör í mikilvægum uppgjörskerfum, þ.e. verðbréfauppgjörskerfum og smágreiðslukerfi.
Greiðslur milli fjármálafyrirtækja sem eru lægri en 10 m.kr. fara í gegnum smágreiðsluhluta MBK. Smágreiðslur eru gerðar upp í stórgreiðsluhlutanum tvisvar á dag.
Starfrækslutími kerfisins
- Hvor hluti millibankakerfisins hefur eigin starfrækslutíma á degi hverjum. Stórgreiðslukerfið er opið fyrir hefðbundna greiðslumiðlun milli viðskiptavina þátttakenda frá kl. 9:00-16:30 á viðskiptadögum. Beri 31. desember upp á viðskiptadegi er SG-kerfið opið frá 09:00-12:00.
- Smágreiðslukerfið er opið allan sólarhringinn. Uppgjör smágreiðslna fer fram tvisvar á dag kl. 8:30 og kl 16:00.
- Uppgjör verðbréfa hjá verðbréfamiðstöð Nasdaq fer fram fimm sinnum á dag, þ.e. kl. 9:15, 10:30, 11:45, 13:00, 14:00 og 15:20.
- Uppgjör verðbréfa hjá Verðbréfamiðstöð Íslands fer fram þrisvar sinnum á dag, þ.e. kl. 10:00, 13:30 og 15:30.
Þátttakendur
Þátttakendur í millibankakerfi Seðlabanki Íslands geta verið innlend og erlend fjármálafyrirtæki sem Seðlabankinn samþykkir. Núverandi þátttakendur eru:
- Arion banki hf.
- Clearstream Banking S.A. í Lúxemborg.
- Euroclear Bank SA/NV í Belgíu.
- indó sparisjóður hf.
- Íslandsbanki hf.
- Kvika banki hf.
- Landsbankinn hf.
- Sparisjóður Austurlands hf.
- Sparisjóður Höfðhverfinga ses.
- Sparisjóður Strandamanna ses.
- Sparisjóður Suður-Þingeyinga ses.
- Seðlabanki Íslands.
Þátttakendur og skilyrði þátttöku í MBK
II. kafli reglna um millibankagreiðslukerfi Seðlabanka Íslands fjallar um þátttakendur og skilyrði þátttöku.
Seðlabanki Íslands tekur ákvörðun um aðild nýrra þátttakenda að millibankakerfinu og útilokun á þátttöku aðila í kerfinu.
Þátttakendur geta verið stofnanir samkvæmt skilgreiningu 2. tl. 2. gr. laga nr. 90/1999 og aðrir aðilar sem Seðlabankinn samþykkir, enda uppfylli þátttakendur þátttökuskilyrði skv. 4. gr. reglna um millibankagreiðslukerfi.
Fjármálafyrirtæki með staðfestu og starfsleyfi erlendis, en starfsemi hér á landi, skal eingöngu veitt aðild að millibankakerfinu ef það sætir sambærilegu eftirliti í heimaríki sínu og lög nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi kveða á um.
Milligönguaðilar, uppgjörsaðilar og greiðslujöfnunarstöðvar samkvæmt 3., 4. og 8. tl. 2. gr. laga nr. 90/1999 geta með samþykki Seðlabanka Íslands verið þátttakendur í millibankakerfinu. Um réttindi og skyldur þeirra, auk annarra óbeinna þátttakenda, fer samkvæmt ákvæðum laga nr. 90/1999 og 3. og 4. gr. þessara reglna eftir því sem við á.
Seðlabanki Íslands er beinn þátttakandi í millibankakerfinu.
Heimildir og uppgjörstryggingar
Þátttakandi gerir skriflegan samning við Seðlabankann um heimild í millibankakerfinu. Heimildin gildir fyrir þátttakandann samanlagt í stórgreiðsluhluta kerfisins sem og smágreiðsluhluta þess. Þátttakandi skal leggja fram nægar tryggingar fyrir heimildinni sem Seðlabankinn metur og samþykkir. Fjárhæð trygginga að teknu tilliti til frádrags skal eigi vera lægri en fjárhæð heimildar viðkomandi þátttakanda.
Verðmæti trygginga
Við mat á verðmæti verðbréfa og annarra trygginga sem Seðlabankinn metur fullnægjandi, sem lögð eru fram vegna samnings um fjárhagslega tryggingaráðstöfun skal reikna frádrag frá viðmiðunarverði. Frádrag verðbréfa og annarra hæfra trygginga er birt á vefsíðu Seðlabankans. Seðlabankinn getur reiknað frádrag umfram það sem fram kemur á vefsíðu Seðlabankans ef bankinn telur það nauðsynlegt, t.d. vegna markaðsaðstæðna.
Listi yfir tryggingar sem Seðlabankinn metur hæfar í millibankakerfinu er birtur á vefsíðu Seðlabankans.
Sérstakar takmarkanir gilda um sértryggð skuldabréf. Takmarkanirnar eru eftirfarandi:
- Sértryggð skuldabréf skulu gefin út samkvæmt lögum nr. 11/2008.
- Útgefið markaðsvirði flokks skal vera 5 ma.kr. og staðfest að það magn hafi verið selt.
- Tryggingasafn sértryggðs skuldabréfs skal eingöngu samanstanda af skuldabréfum tryggðum með veði í íbúðarhúsnæði hér á landi.
- Fjármálafyrirtæki getur lagt fram til tryggingar allt að 3 ma.kr. að markaðsvirði af eigin útgáfu sértryggðra skuldabréfa.
- Sértryggð bréf geta að hámarki tryggt 50% af heimild hvers þátttakanda í millibankagreiðslukerfinu.
- Virk viðskiptavakt
Gjaldskrá
Seðlabanki Íslands ákveður gjaldskrá vegna rekstrar millibankakerfisins í samræmi við 43. gr. laga nr. 92/2019 um Seðlabanka Íslands. Gjaldskráin er endurskoðuð árlega og birt á vefsíðu Seðlabankans. Kveða skal nánar á um framkvæmd gjaldtöku í samningi þátttakanda við Seðlabanka Íslands.
Upplýsingar um gjaldskrá MBK: Þátttakendur greiða árgjald sem dreift er á 12 mánuði og skuldfært af reikningum annan virkan dag hvers mánaðar.
Yfirsýn
Yfirsýn fjármálainnviða í Seðlabankanum hefur það markmið að stuðla að öryggi, virkni og hagkvæmni kjarnainnviða íslensks fjármálakerfis, eða kerfislega mikilvægra fjármálainnviða og þar með fjármálastöðugleika.