Endurhverf verðbréfakaup fyrir 36 milljarða króna
Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 16 apríl. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 9,6%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 36 milljarðar króna en á innlausn voru 49,5 milljarðar króna. Næsta uppboð er fyrirhugað 23. apríl n.k.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9600.
Línurit yfir endurhverf viðskipti
Nr. 16/2002
16. apríl 2002