Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í
lok október 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í
október 2003 og frá ársbyrjun 2003.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans
jókst í mánuðinum um 5,4 milljarða króna og nam 51,7 milljörðum króna í
októberlok (jafnvirði 680 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend
skammtímalán bankans vegna gjaldeyrisforða eru engin, en um síðustu áramót námu
þau rúmlega 16 milljörðum króna.
Seðlabankinn keypti gjaldeyri á
innlendum millibankamarkaði fyrir 4,4 milljarða króna í október í samræmi við
áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a var greint
frá í maíhefti Peningamála 2003. Gengi íslensku krónunnar veiktist um 0,3% í
októbermánuði.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,9 milljörðum
króna í októberlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf
ríkissjóðs 0,7 milljörðum króna og lækkuðu þau um 0,5 milljarða króna en í
mánuðinum voru ríkisbréf á gjalddaga.
Kröfur Seðlabankans á
innlánsstofnanir lækkuðu um 11,4 milljarða króna í október og námu 44,3
milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust
lítið og námu 3,2 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nettókröfur
bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 11,6 milljarða króna í október
og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 16,5 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans hækkaði í október um 5,8 milljarða króna og nam 37,4
milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar
Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 83 kb)
Nr. 28/2003
6. nóvember 2003