03. nóvember 2008
Greiðari greiðslumiðlun til og frá Bretlandi
Greiðslumiðlun til og frá Bretlandi gengur nú mun betur en áður. Hafa ber þó áfram í huga að greiðslur taka almennt lengri tíma að berast en áður en vandkvæðin komu upp fyrir um mánuði síðan.
Varðandi þær greiðslur sem berast í gegnum Seðlabanka Íslands þarf að huga sérstaklega að því að til að greiðslur til Íslands berist örugglega þarf greiðandinn í Bretlandi að vera með rétt greiðslufyrirmæli og fara fram á að greitt sé í gegnum reikning Seðlabanka Íslands (The Central Bank of Iceland) hjá National Westminster Bank. Ef nefnd eru nöfn þeirra lánastofnana sem lent hafa í sérstökum erfiðleikum getur það tafið eða hindrað greiðslu.
Greiðslufyrirmæli í hinum ýmsu myntum má finna hér:
Sjá greiðslufyrirmæli frá 30.10.08
Sjá nánar: